Auðlesið efni
Dagskrá í febrúar fyrir opið félagsstarf að Aflagranda 40.
Fyrir fólk með fötlun 40 ára og eldra.
11. Febrúar.
· Húsið opnar klukkan 14 (2)
· Bingó klukkan 14.30 (2.30)
· Eftir bingó verður kaffi og kosið í nefndir.
· Dagskrá lýkur klukkan 17 (5)
Ef fólk hefur áhuga á að vera í t.d. kaffi-nefnd, skemmti-nefnd eða dagskrá-nefnd er um að gera að láta okkur vita á laugar-daginn.
Einnig ef fólk hefur hug-myndir um fleiri nefndir þá er bara að láta okkur vita.
18. febrúar. Strákar það er dagurinn fyrir konudag.... þegar þið dekrið við konurnar......
· Húsið opnar klukkan 14 (2)
· Tónlist og dans
· Karlmenn sjá um kaffið
· Dagskrá lýkur klukkan 17 (5)
25. febrúar
· Húsið opnar klukkan 14 (2)
· Lista og handverks-dagur. Þeir sem vilja geta komið með sína handavinnu. Ef hægt er að fá handavinnu á staðnum verður það auglýst síðar.
· Kaffi
· Dagskrá lýkur klukkan 17 (5)
Ákveðið hefur verið að selja kaffi og meðlæti á 200 kr. Gott væri að hafa pening þar sem við tökum ekki kort.
Þeir sem ekki hafa áhuga á dag-skrá dagsins eru að sjálfsögðu velkomnir því nóg er hægt að spjalla, sýna sig og sjá aðra.
Nánari upplýsingar gefur Jenný í Sérsveit Hins hússins í síma; 520-4608 eða í gegnum tölvupóst; jenny@hitthusid.is
