Forstöðumannafundur 10. febrúar 2010
í gær var haldinn fyrsti fundur forstöðumanna SSR. En þessir fundir eru haldnir reglulega yfir árið og miða að því að miðla upplýsingum, móta starf og stefnu SSR. Að þessu sinni var aðal umfjöllunarefnið að fara yfir árangur síðasta árs en þó aðallega að kynna starfsáætlanir allra sviða SSR fyrir árið 2010 og áherslu atriði í starfsemi SSR. Eins þá staðreynd að miðað er við að málefni fatlaðra færist til Reykjavíkurborgar um áramótin næstu.
Lesa meira
Árshátíð starfsmannafélags SSR
Á laugardagskvöldið var haldin árshátíð starfsmannafélags SSR. Á annað hundrað starfsmenn klæddust betri fötunum og skelltu sér á Brodway til að borða góðan mat, horfa á Eurovision forkeppnina, horfa á Machael Jackson sýninguna og svo var dansað fram á nótt.
Lesa meira
Nýjir forstöðuþroskaþjálfar til starfa hjá SSR
Tvö sambýla SSR hafa ráðið nýja forstöðuþroskaþjálfa frá og með áramótum 2009/2010.
Þar er um að ræða sambýlin að Hólmasundi og Viðarrima.
Melkorka Jónsdóttir gegnir nú forstöðu í Hólmasundi. Hún hefur verið starfandi þar frá því í mars á síðasta ári, nú síðast sem yfirþroskaþjálfi.
Halla Kristín Guðlaugsdóttir gegnir forstöðu í Viðarrima. Hún hefur verið starfandi hjá SSR frá því árið 2006, nú síðast sem yfirþroskaþjálfi í Viðarrima.
