Fréttir 2010
Nýjir forstöðuþroskaþjálfar til starfa hjá SSR
Tvö sambýla SSR hafa ráðið nýja forstöðuþroskaþjálfa frá og með áramótum 2009/2010.
Þar er um að ræða sambýlin að Hólmasundi og Viðarrima.
Melkorka Jónsdóttir gegnir nú forstöðu í Hólmasundi. Hún hefur verið starfandi þar frá því í mars á síðasta ári, nú síðast sem yfirþroskaþjálfi.
Halla Kristín Guðlaugsdóttir gegnir forstöðu í Viðarrima. Hún hefur verið starfandi hjá SSR frá því árið 2006, nú síðast sem yfirþroskaþjálfi í Viðarrima.
Báðar eru þessar konur boðnar velkomnar til starfa á nýjum vettvangi og óskað velfarnaðar.
