Fréttir 2010

Árshátíð starfsmannafélags SSR

7.2.2010

Á laugardagskvöldið var haldin árshátíð starfsmannafélags SSR. Á annað hundrað starfsmenn klæddust betri fötunum og skelltu sér á Brodway til að borða góðan mat, horfa á Eurovision forkeppnina, horfa á Machael Jackson sýninguna og svo var dansað fram á nótt.

Það er skemmst frá því að segja að þetta kvöld heppnaðist með ágætum. Maturinn var ágætur og á meðan á borðhaldi stóð horfðum við á Eurovision keppnina á skjá beint. Það passaði svo að þegar þeirri keppni lauk þá var komið að sýningunni "Michael Jackson tónlistarsýning" Og þvílík sýning með tugum listamanna. Þarna vor frábærir hljóðfæraleikarar undir stjórn Gunnars Þórðarsonar, dansarar og söngvarar og allir voru frábærir. Svo góðir að fólk sem hingað til hafði ekki fundist neitt til um Michael Jackson voru alveg gapandi yfir þessari sýningu. Ég held að ég halli á engan þegar ég nefni þarna unga stúlku Maríu Ólafsdóttur sem söng m.a. lög sem Machael söng sem barn og unglingur og gerði það af tærri snilld.

Eftir að sýningunni lauk þá tók hljómsveitin Bermuda við og lék fyrir dansi fram á kvöld. Og starfsfólk SSR lét ekki sitt eftir liggja og lagði undir sig dansgólfið á köflum.

Sambýlið Hólmasundi vann farandverðlauin "Glerskórinn" sem veittur er þeirri starfsstöð þaðan sem hlutfallslega flestir mæta.

Þetta var mjög vel heppnað kvöld og við hæfi þar sem að líkur eru á að þetta verði sú síðasta þar sem að unnið er að þvi að málefni fatlaðra færist undir Reykjavík um næstu áramót. Að lokum er rétt að þakka Friðriki Atlasyni fyrir allan undirbúninginn því að fréttaritara skildist að þessi vinna hafi að mestu lent á honum. Takk Friðrik.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn