Fréttir 2010
Forstöðumannafundur 10. febrúar 2010

Uppgjör 2009 og áherslur 2010
Jón Heiðar Ríkharðsson framkvæmdarstjóri SSR hóf fundinn á að fara yfir starfsemi síðasta árs. Meðal atriða sem komu fram hjá honum var að rekstur SSR 2009 var með tekjuafgang uppá 70 milljónir. Opnað var nýtt sambýli í Bleikargróf á árinu og 3 íbúðir að Skipholti 17 voru tengdar þjónustu kjarnans í Skipholti 15. Sambýlið að Trönuhólum 2 var stækkað og fjölgað þar um einn íbúa. Skammtímaþjónustu fyrir börn í Strýtuseli 2 var lögð niður og önnur úrræði fundin fyrir þá sem þar nutu þjónustu. Heimili fyrir börn að Árland 2 var lokað síðla sumars vegna endurbóta og fluttu íbúar í önnur úrræði.
Opnuð var helgarþjónusta, þ.e. dagþjónusta um helgar, fyrir börn sem búa í foreldrahúsum.
Mikil aukning var í þjónustu stuðningsfjölskyldna á árinu. Unnið var að ýmiskonar endurskipulagningu víða í þjónustunni sem miðar að hagræðingu og betri nýtingu fjármagns.
Eins var unnið að endurskoðun verkferla, svo sem við launaafgreiðslu. Heimilisbókhald starfsstöðva var endurskipulagt í samráði við Ríkisendurskoðun og færsla bókhalds færð á aðalskrifstofu.
Allar starfsstöðvar SSR fóru í gegnum EFQM sjálfsmat sem skilaði mörgum hugmyndum að umbótarverkefnum. (sjá nánar um EFQM hér)
Á þessu ári eru mörg og stór verkefni framundan.
Eitt af megin markmiðum SSR 2010 verður
Að leggja áherslu á að hagnýtingu þekkingar og skapa umgjörð sem örvar skapandi hugsun við framkvæmd þjónustu SSR
Niðurstöður EFQM og samanburður
Halldór K. Júlíusson sálfræðingur og sviðstjóri Þróunar- og greiningasviðs SSR fór yfir EFQM sjálfsmat sem skrifstofa og yfirstjórn SSR hefur nú 2x farið í gegnum. Hann sýndi samanburð á milli niðurstaðna frá 2007 og svo aftur 2009 og mátti sjá framfarir í flestum þáttum og heildar niðurstöðu.
Kynning starfsáætlana sviðsstjóra og umbótaverkefni
Öll svið SSR kynntu fyrir fundinum starfsáætlanir sínar fyrir 2010. Ekki verður þeim gert skil hér en mörg krefjandi verkefni sem ráðast á í næsta árið. En hjá öllum var einn þáttur sameiginlegur en það var að öll svið vinna á þessu ári á fullu við að undirbúa flutning málaflokksins yfir til Reykjavíkurborgar um næstu áramót eins og fyrirhugað er.



Guðný A. Arnþórsdóttir Kristín Einarsdóttir Hróðný Garðarsdóttir


Unnur Ágústsdóttir Sólveig Steinsson
Umhverfisstefna SSR 
SSR hefur nú opinberað umhverfisstefnu sína sem unnið hefur verð að í nokkra mánuði. Verkefnahópur sem unnið hefur að stefnunni kynnti vinnu sína og stefnuna má sjá hér
Árangursmælikvarðar og markmið
Halldór K. Júlíusson kynnti fyrir okkur ýmislegt varðandi árangursmælikvarða og markmð. M.a. verður leitast við auka upplýsingastreymi um árangur í starfi SSR og um leið að nýta þær upplýsingar til að gera enn betur. Og markmiðasetning miðast við það að gera enn betur. Þessa mun meðal annars sjá stað hér á heimasíðu SSR
Uppfærð stefnumótun SSR
Jón Heiðar kynnti uppfærða stefnumótun SSR sem má sjá hér.
Fundarstjórn var eins og venjulega frábær í höndum Lone Jenssen

