Fréttir
Forstöðumannafundur SSR 6. maí
Fundurinn hófst á því að Jón Heiðar kynnti hvað væri efst á baugi núna varðandi málefni SSR. M.a. má nefna að nú fer að styttast í að nýtt sambýli í Bleikjugróf opni. Eins er nú að opna nýtt helgarúrræði fyrir börn sem gengur út á dagvistun fyrir fötluð börn um helgar. Um tilraun er að ræða sem á að svara óskum um þjónustu fyrir börnin og fjölskyldur þeirra þar sem þau koma að morgni og fara svo heim að kvöldi. Þetta er viðbót við aðra þjónustu sem veitt hefur verið í skammtímavistunum. Eins sagði Jón frá því að flutningur málefna geðfatlaðra til Reykjavíkur hefði verið frestað í vor og nú væri stefnt að því að það yrði í sumar.
Næst tóku til máls Hróðný Garðarsdóttir og Sólveig Steinsson og kynntu niðurstöður Sjálfsmats starfstöðva SSR. Hróðný rakti ferlið frá því að farið var að vinna að þessu mati sem hluti af innleiðingu EFQM gæðamódelsins í starf SSR.
Í upphafi kom í ljós að SSR þyrfti að aðlaga mælitæki EFQM að starfsemi okkar. Því var settur niður hópur sem vann að því. Út úr þeirri vinnu kom svo Sjálfsmatið sem lagt var fyrir allar starfsstöðvar SSR. Matið skiptist í 4 flokka þar sem að farið var yfir. Þeir voru Stjórnunarþáttur, Stafsmannaþáttur og 2 flokkar þar sem þjónustuþátturinn var metinn.
Matið sjálft fór þannig fram að allt starfsfólk starfsstöðvar kom saman á 4 tíma vinnufundi. Þar var farið í gegnum spurningarlista í hverjum fólk og rætt um hvernig staðan væri. Umræða var mikil og í henni ræddi fólk um hvað væri verið að gera vel og svo hvað mætti bæta. Og um leið voru tilgreind verkefni sem þyrfti að vinna að.
Út úr þessu mati fengust því ýmis atrið sem kölluð eru umbótarverkefni. Lok matsins fólst svo í því að þátttakendur gáfu hverjum flokk einkunn frá 0 til 100 eftir því hvernig þau töldu að staðan væri á viðkomandi starfsstöð í þeim 4 flokkum sem getið er um hér að ofan.
Sólveig Steinsson kynnti því næst niðurstöður sem unnar voru út úr niðurstöðum allra starfstöðva sem og niðurstöður könnunar sem allir forstöðumenn og deildarstjórar svöruðu varðandi þessa vinnu. Nokkur munur var á milli starfsstöðva í matinu sem var m.a. skýrt með að það var mismunandi hversu mörg umbótarverkefni þau höfðu fundið. En segir samt ekkert um gæð þjónustunnar. Könnunin sem gerð var eftir þessa matsfundi sýndi almenna ánægju með þau. Fólki fannst fínt að fara svona yfir starfið og margt kom í ljós sem mátti laga þó almennt sýndu niðurstöður matsins að fólk taldi að verið væri að vinna vel.
. Eftir að Sólvegi og Hróðný höfðu lokið kynningu sinni kom Unnur Ágústsdóttir fjármálastjóri og kynnti nýjar aðferðir varðandi heimilisbókhald sem verður þannig í framtíðinni að í stað þess að forstöðumenn hafa verið að færa heimilisbókhaldið þá verður ráðinn starfsmaður (bókari) á skrifstofuna sem færir bókhald fyrir starfsstöðvarnar. Þetta er í samræmi við góðar bókhaldsvenjur og minnkar líkur á mistökum
Guðný Anna starfsmannastjóri og Steinun launafulltrúi og kynntu umbótaverkefni sem eru í gangi á starfsmannasviði. Það gengur m.a. út á aukið upplýsingastreymi og betra aðgengi að upplýsingum m.a. á netinu. Eins kynntu þær námskeið fyrir forstöðumenn m.a í Oracul og starfsmannaviðtölum.
Undir liðnum önnur mál kynnti Fiskahópur SSR Fjölskylduskemmtun SSR fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra sem og þeirra sem SSR veitir þjónustu. En sú skemmtun verður haldinn í Laugardalnum næsta laugardag.
Þóroddur Þórarinsson átti síðan síðasta erindi sem fulltrúi hóps sem vinnur að samræmdum reglur fyrir SSR varðandi skjalavörslu og geymslu. Hann boðað athugun sem send yrði forstöðumönnum og þeim gert að svara varðandi stöðu þessara mál hjá þeim
