Fréttir
Fjölskyldudagur SSR
Fjölskyldurdagur SSR var haldinn í dag 9. maí í Grasagarðinum í Laugadal. Nánar tiltekið við Þvottalaugarnar. Veðrið var bjart og fallegt. Kalt í fyrstu en hlýnaði mjög er á leið. Við áætlum að um 100 manns hafi komið og átt ánægjulega stund saman.
Samveran hófst upp úr klukkan 14:00. Lone Jensen fyrir hönd hópsins sem stóð að þessum degi bauð fólk velkomið. Hún kynnti til sögunar Kristínu Einarsdóttur félagsráðgjafa og líkamsræktar kennara sem stjórnaði upphitun.
Því næst tók Jón Heiðar framskvæmdarstjóri SSR við og kynnti og stýrði ratleik sem leiddi fólk um allann gariðinn, þar sem þau leystu ýmsar þrautir. Þegar hóparnir höfðu skilað sér til baka var boðið upp á veitingar og andlitsmálingu.
Þá stigu á stokk Hara systur sem sungu fyrir og með fólki við mikla ánægju.
Við sem tókum þátt í deginum þökkum Fiskihóp SSR kærlega fyrir góðan dag.
