Fréttir

Iðnó
Iðnó

Geðsvið Landspítala/Háskólasjúkrahúss hélt í gær vel heppnaðan starfsdag í Iðnó.

26.6.2009

Geðsvið Landspítala/Háskólasjúkrahúss hélt í gær vel heppnaðan starfsdag í Iðnó. Starfsdagurinn markaði upphaf að stefnumótunarvinnu geðsviðsins sem verður fram haldið í haust. Til starfsdagsins var auk starfsfólks af geðsviði boðið samstarfsaðilum geðsviðsins og mættu 4 fulltrúar SSR en alls tóku 110 manns þátt í starfsdeginum. Í niðurstöðum hópavinnu kom fram áhersla á eflingu frumþjónustu á heilsugæslustöðvum, teymisvinnu fagfólks og mikilvægi samstarfs geðsviðs og annarra þjónustuaðila við úrlausn mála. Jafnframt kom fram mikill stuðningur við þá uppbyggingu félagslegrar þjónustu fyrir geðfatlaða sem nú á sér stað og færslu verkefna frá geðsviði til félagslegra þjónustuaðila með Straumhvarfaverkefninu.

Til baka, Senda, Prenta

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn