Fréttir

Fundargestir
Fundargestir
« fyrri
1 2 3 4 5 6 7

Forstöðumannafundur SSR

26.8.2009

Í dag var haldinn forstöðumannafundur SSR á Hótel Loftleiðum. Aðalviðfangsefnið var að kynna drög að viðbragðsáætlun SSR vegna H1N1 eða það sem kallað er "Svínaflensa"

Unnin hefur verið áætlun sem hefur það að markmiði að tryggja grunnþjónustu fólk sem býr í úrræðum sem heyra undir SSR. Þetta á við ef að H1N1 stingur sér niður. Eins mætti á fundin Guðrún Sigmundsdóttir yfirlæknir á sóttvarnarsviði Landlæknis. Hún kynnt stöðu mála hvað varðar útbreiðslu og almenn viðbrögð til að draga úr útbreiðslu. Það má finna upplýsingar um flest sem snertir H1N1 á www.influensa.is

Lone Jensen kynnti drögin að viðbragðsáætlun SSR sem er viðamikil upp á 20 síður á að taka á öllum þeim vandamálum sem geta komið upp

Þá komu Forstöðumaður og yfirþroskaþjálfi frá Sambýlinu Byggðarenda og sögðu frá reynslu sinni en þau hafa nýverið gegnið í gegnum það að hópur starfmanna greindust með H1N1. Þær sögðu frá aðgerðum sem þær gripu til. Þar þurfti að leita eftir aðstoð bæði þeirra starfsmanna sem ekki veiktust sem þurftu að bæta við sig vinnu, eins var leitað til að aðstandenda sem veittu aðstoð.

Fundinum lauk svo með því að Jón Heiðar Ríkharðsson framkvæmdarstjóri fjallaði um stöðu SSR í ljósi aðhaldsaðgerða stjórnvalda og horfur næstu ára.

Að lokum



Til baka, Senda, Prenta

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn