Fréttir
Samferða
Á námskeiðinu verður fjallað um samskipti, vináttu og sjálfsmynd. Einnig verður lögð áhersla á að fræða unglingana um eigin fötlun.
Ætlunin er að eiga skemmtilega stund saman þar sem öllum líður vel og skapa vettvang þar sem þátttakendur fá tækifæri til að ræða um sjálfan sig og sín áhugamál á jafningjagrundvelli. Námskeiðið er ætlað ugmennum á aldrinum 13 – 20 ára. Þátttakendum er skipt í hópa eftir aldri.
Námskeiðið verður haldið í Kjörgarði, Laugavegi 59 á þriðjudögum kl. 17:30-19:00 og kostar 15.000.
Við hittumst sex sinnum og hefst námskeiðið þann 22. september og lýkur 27. október.
Dagskrá:
22.09. Fræðsla um eigin fötlun - þátttakendur kynnast
29.09. Vinátta og samskipti
06.10. Tómstundir og áhugamál - Borðað saman á „Santa María“
13.10. Spilað og spjallað - Tjáning og slökun
20.10. Lífssýn og framtíðarplön
27.10. Samantekt og bíóferð
Skráning fer fram á:
eyglo.ingolfsdottir@mk.is og nanna.andresdottir@mk.is
Nánari upplýsingar í síma 824-4690 og 820-0912
Eygló Ingólfsdóttir og Nanna Andrésdóttir starfa á starfsbraut fyrir einhverfa í Menntaskólanum í Kópavogi og hafa báðar áralanga reynslu í vinnu með einstaklingum á einhverfurófinu.
