Fréttir
Sambýlið Bleikargróf
Í dag var formleg athöfn þar sem 5 einstaklingum voru formlega afhentar íbúðir sínar í nýju sambýli í Bleikargróf. Húsnæðið er sérstaklega byggt með þarfir þeirra í huga en öll eru þau í hjólastól.
Að athöfninni voru m.a mættir foreldrar og ættingjar íbúa, fulltrúar úr félagmálaráðuneyti, SSR og starfsfólk sambýlisins. Aðstæður eru allar hinar glæsilegustu og virtust nýjir íbúar ánægðir. Þeim voru haldnar ræður og afhent blóm í tilefni dagsins. Valborg Helgadóttir þroskaþjálfi veitir sambýlinu forstöðu
Af þessu tilefni var nokkrum myndum splæst á netið.




