Fréttir

Halldór og Herdís
Halldór og Herdís
Halldór og Herdís skipulögðu þennan dag
« fyrri
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18

SSR vinnur að samræmdri umhverfisstefnu

12.11.2009

Í dag var haldinn Haustfundur forstöðufólks og framkvæmdarráðs SSR. Að þessu sinni var fundurinn haldinn á Hótel Örk í Hveragerði. Viðfangsefni fundarins var mótun heildstæðrar umhverfisstefnu SSR.

Jón Heiðar Ríkharðsson hóf fundinn með hugleiðingu um mikilvægi þess að taka þessi mál föstum tökum. Hann kynnti þætti sem tengjast áherslum í vinnuumhverfi og kallast EHS (Environment, Health, and Safety eða umhverfi, heilsa og öryggismál). Jón Heiðar lagði áherslu á að öryggismál væru miklu meira en bara brunavarnir. Það þyrfti að skapa vinnuumhverfi þar sem dregið væri úr hættu á slysum og stefna að fullkomnum árangri , - að slys á vinnustað ættu sér ekki stað. Þá lagð hann áherslu á að vinnuumhverfi væri snyrtilegt og benti á að umgengni sýndi okkar innri mann.

Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur, flutti aðalfyrirlestur dagsins. Í fyrirlestri sínum Stefán Gíslason umhverfisfræðingurfjallaði Stefán um umhverfismál frá mörgum sjónarhornum á fræðandi og skemmtilegan hátt. Glærur frá fyrirlestrinum eru aðgengilegur á innra neti SSR. Hér má sjá nánar um störf Sefáns Meðal margra merkilegra hluta sem komu fram hjá Stefáni voru m.a.:

  • Merki á ílátum sem við höfðum talið að væru merki um umhverfisvottun eða umhverfisvænar vörur reyndust vera merki um eitthvað allt annað.
  • Eins og flokkunarmerki fyrir endurvinnslu, eða þvílíkt.
  • Raunveruleg umhverfisvottun er Græni svanurinn og nokkur önnur merki sem eru almennt viðurkennd.
  • Hann benti okkur á að rafmagnstæki eins og sjónvörp á „stand by" (í hvíldar stöðu) eyða oft miklu rafmagni. Jafnvel sumir lampar sem eru með straumbreyti geta eytt miklu rafmagni þó það sé slökkt á þeim.
  • Hann sagði það að maðurinn væri að senda út í andrúmslofið um 3,2 gígatonn af C02 umfram það sem við vinnum á móti t.d. með skógrækt.
  • Hann sagði að það væri míta að við værum ekki að hafa áhrif á hlýnun jarðar. Vísindamenn væru almennt sammála um að maðurinn hefði áhrif á hlýnun jarðar.

Fólk var mjög ánægt með hans innlegg.Og svona væri hægt að tala lengi um fyrirlestur hans. Fólk var mjög ánægt með hans innlegg.

Eftir hádegi skiptu þátttakendur sér í hópa sem hver og einn tók fyrir eitt svið í umhverfisstefnu SSR, en starfshópur forstöðumanna hafði undirbúið þá vinnu. Að lokum kynntu hóparnir niðurstöður sínar sem verða teknar saman og munu mynda umhverfisstefnu SSR.

Að vinnu lokinni var boðið upp á skoðunarferð um Hveragerði undir leiðsögn Björns Pálssonar Björn Pálsson leiðsögumaður okkar um Hveragerði.sagnfræðings og fyrirverandi héraðsskjalavarðar Árnessýslu. Björn er hafsjór af fróðleik um sögu bæjarins og kann margar lausavísur um Hvergerðinga. Hann leiddi okkur um gamla bæinn þar sem margir merkismenn og skáld höfðu búið í gegnum tíðinna

Þessi árangursríki dagur endaði svo á kvöldverði á Hótel Örk með skemmtiatriðum í boði starfsmanna SSR.

Hér á eftir koma nokkrar myndir í viðbót sem teknar voru á Hótel Örk og Hveragerði.

Björn Pálsson leiðir hér hópinn um Hveragerði

Björn Pálsson leiðir hér okkur um Hveragerði.

Boðið upp á hressingu úr umhverfisvænum drykkjarílátum

Veitingar úr ílátum sem voru svo borðuð eftir að þau voru tæmd.

Þóroddur og Bryndís sáu um skemmtiatriði
Þóroddur og Bryndís sem sáu um skemmtiatriði með kvöldmatnum

 

Kvöldverður

 

Jón Heiðar þakkar fyrir gott starf um daginn

 

Frá kvöldverði

 

Eitthvað voða sniðugt

Fleiri myndir hugsanlega síðar.

Til baka, Senda, Prenta

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn