Fréttir

EFQM
EFQM

SSR fer í EFQM-sjálfsmat í annað sinn

26.11.2009

Um þessar mundir er SSR að gera sjálfsmat samkvæmt EFQM líkaninu. Sjálfsmatið er aðferðarfræði í gæðastjórnun sem þróuð er af Evrópsku gæðastjórnunarstofnuninni. Sjálfsmatið felst í því að lykilþættir starfseminnar eru metnir með skipulegum hætti. Markmiðið er fremur að meta hvort starfsemin fari fram eins og viðkomandi stofnun eða fyrirtæki ætlar sér að framkvæma hana fremur en eftir stöðluðum utanaðkomandi viðmiðum. Við matið mun SSR leitast við að svara þeirri spurningu hvort verið sé að veita þá þjónustu sem ætlast er til að stofnunin veiti og hvort SSR geri það með þeim aðferðum sem það ætlar sér að nota.

Þetta er í annað sinn sem SSR gerir EFQM-sjálfsmat en sambærilegt mat var gert í árslok 2007.  SSR á aðild að EFQM faghóp Stjórnvísi, sem er þekkingarfélag sem stuðlar að framsækinni stjórnun í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum.

 



Til baka, Senda, Prenta

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn