Fréttir
Opin Kerfi gefa tölvu til heimilis fyrir fötluð börn
Fyrirtækið Opin kerfi hefur ákveðið að veita Heimili fyrir fötluð börn Móavaði jólakortastyrk ársins 2009. Styrkurinn sem er HP tölva og veglegur skjár verður eingöngu notuð af börnunum sem hvert mun eiga sitt eigið svæði á tölvunni. Tenglar barnanna munu aðstoða þau við að setja efni við þeirra hæfi inn á svæðin. Tölvan mun þannig nýtast við nám, eykur fjölbreytni afþreyingar barnanna og gerir þeim sjálfum kleift að velja og hafna leikjum og annarri afþreyingu.
Í Móavaði búa mjög líkamlega fötluð börn og það er von Opinna Kerfa að með gjöfinni aukist lífsgæði þeirra.
