Fréttir
Heimsókn frá Miðgarði
S.l. föstudag komu sérfræðingar Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Grafarvogs, í heimsókn til SSR. Erindið var að fræðast og undirbúa væntanlega tilfærslu á þjónustu fyrir fatlaða til Reykjavíkur og þá sérstaklega þjónustu fyrir fatlaða í Grafarvogi. Á kynningu SSR fyrir gestina úr Miðgarði kom fram að SSR starfrækir 7 sambýli í Grafarvogi auk dagþjónustu fyrir fatlað ungt fólk. Þá kom fram að í Grafarvogi eru 259 fatlaðir íbúar á skrá SSR, 156 börn og 103 fullorðnir.
