Fréttir

Færeyingar í heimsókn hjá SSR
Færeyingar í heimsókn hjá SSR

Vikuna 8-12 febrúar kom hópur fagfólks frá Færeyjum í heimsókn til SSR

17.2.2010

Vikuna 8-12 febrúar kom hópur fagfólks frá Færeyjum í heimsókn til SSR.Hópurinn samanstóð af uppeldismenntuðu fólki, félagsráðgjafa og hjúkrunarfræðingi, sem starfar með börnum og ungmennum í Færeyjum . Markmiðið var að fræðast um starfsemi SSR og þá þjónustu sem í boði er fyrir fötluð börn og ungmenni og fjölskyldur þeirra. Hópnum var boðið til fundar á aðalskrifstofu SSR þar sem farið var yfir starfsemi stofnunarinnar og þau verkefni sem tengjast börnunum. Jafnframt voru skipulagðar heimsóknir fyrir hópinn á heimili fyrir börn í Móvaði og skammtímavistanirnar í Hólabergi og á Holtavegi. Til að fá sýnishorn af dagþjónustu fyrir börn var leitað til forstöðumanns í Lyngási sem tók vel á móti hópnum.

Hópurinn lét vel af heimsókninni og færði þeim sem tóku á móti þeim fallegt handverk sem búið er til af Magna og öðrum listamönnum í færeyskri dagþjónustu.

Hér fylgja með myndir af hópnum að snæða léttan hádegisverð í Hólabergi 86 og handverkinu.

hópur fagfólks frá Færeyjum

færeyskt handverk frá dagþjónustu í Færeyjum.



Til baka, Senda, Prenta

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn