Fréttir
Unnur Ágústdóttir sviðsstjóri rekstrarsviðs SSR hlaut Hvatningarverðlaun Stjórnvísi 2010
Í dag voru veitt stjórnunarverðlaun Stjórnvísi. „ Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda sem eru aðilar að Stjórnvísi og hvetja félagsmenn til áframhaldandi faglegra starfa og árangurs." Veitt voru verðlaun í 3 flokkum: fjármála-, mannauðs- og þjónustustjórnunar. Og svo Hvatningaverðlaun sem Unnur hlaut. Um Unni segir í niðustöðum valsins.
„Unnur Ágústsdóttir hlýtur Hvatningarverðlaun Stjórnvísi 2010 Unnur Ágústsdóttir hefur verið sviðsstjóri rekstrarsviðs hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík (SSR) frá 2006. Hún er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og stundar nú Diplomunám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.
Unnur hefur sýnt mælanlegan árangur sem sviðsstjóri og sem mikilshæfur stjórnandi í stjórnendateymi SSR. Eftir nokkur erfið ár fylgir rekstur nú rekstrarramma, áætlanir standast og fjármálastjórn er til fyrirmyndar. SSR nýtur það mikils trausts á þessu sviði að eftir því hefur verið tekið og leitað er til stofnunarinnar af ráðuneyti og samstarfsaðilum eftir ráðgjöf og aðferðum í fjármálastjórn. Unnur hefur innleitt margvíslegar aðgerðir til að efla gagnvirk samskipti við forstöðumenn þannig að upplýsingar um rekstrarstöðu berast nú skilvirkilega til þeirra í byrjun hvers mánaðar. Þær starfsstöðvar sem ekki halda áætlun eru settar í „mjúka gjörgæslu“ þar sem þeim er veittur margvíslegur stuðningur, byggður á nákvæmri greiningu, til að ná tökum á rekstrarstöðunni. Með framsýni að leiðarljósi ásamt þrotlausri vinnu hefur Unnur lagt grunninn að því með meðstjórnendum sínum að SSR getur nú tekist á við breyttar en tímabundnar aðstæður í samfélaginu af sveigjanleika og án samdráttar í þjónustu."
Auk þess er gaman að geta þess að Hróðný Garðarsdóttir sviðsstjóri Fullorðinssviðs SSR og Sólveig Steinsson sviðsstjóri Barnasviðs SSR voru báðar tilnefndar til verðlauna í flokki þjónustustjórnunar.
Óskum Unni Ágústdóttur hjartanlega til hamingju með verðlaunin. Sem og Hróðnýju og Sólveigu með tilnefningarnar.
