Fréttir
Keilukeppni starfsmanna vindur upp á sig!
Starfsmannafélag SSR "Miðgarðsormur hefur árlega staðið að keilumóti þar sem starfsstöðvar SSR hafa mætt með lið og keppt sín á milli. Nú í ár fer þessi keppni fram 31. mars. Ýmsar skemmtilegar hliðarkeppnir hafa fylgt þessu eins og búinningakeppni og fleira. En að þessu sinni hefur tilefni "Mottu-mars" bæst við nýr liður.
Nú eru nokkrir starfsmenn farnir að safna mottu (yfirvaraskeggi) til að safna áheitum fyrir átak Krabbameinsfélagsins um Karlmenn og krabbamein. Til að auka á áheitin er menn farnir að ganga lengra. Þannig var einn að tilkynna að ef áheitin ná 25 þúsundum muni hann raka af sér allt hár nema mottuna. Og annar ætlar að lita á sér mottuna bleika og skarta bleikum hanakamb. Og áheitum samstarfsfélaga þeirra rignir inn. Því er ljóst að þeir verða látnir standa við loforð sín
