Fréttir
Stofnun ársins 2010
Niðurstöður í könnun inni Stofnun Ársins hafa verið birtar. Umferðarstofa og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli hljóta heiðurinn af því að vera stofnanir ársins 2010 og eru þeim færðar árnaðaróskir. Athygli vekur að í öðru sæti meðal stærri stofnana (starfsmenn fleiri en 50) er Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi og er þeim óskað til hamingju með frábæran árangur.
SSR hefur tekið þátt í könnuninni frá upphafi eða frá 2006. Meðfylgjandi tafla sýnir árangur SSR borinn saman við heildina. SSR hefur heldur verið að klifra upp á við og hefur tvö síðustu árin verið fyrir ofan meðaltal. Í fyrstu könnuninni 2006 var SSR í 87 sæti en hefur tvö síðustu ár vermt 57 sætið. Þátttaka í könnuninni af hálfu SSR milli 39% og 45%. SSR þakkar starfsfólki þátttöku en kannanir sem þessar veita mikilvægar upplýsingar um starfsemi stofnana og eru forsenda framfara og þróunar.

