Fréttir
Forstöðumannafundur SSR
Jón Heiðar Ríkharðsson hóf fundinn á að kynna hvernig staðan er á markmiðum og verkefnum SSR á þessu ári. Sem og hvaða verkefni eru framundan. SSR birtir nú á síðunni stöðu markmiða sem sett voru fyrir þetta ár. Og þær upplýsingar er hægt að nálgast hér . SSR gengur út frá því að málaflokkur fatlaða flytjist yfir til Reykjavíkurborgar um næstu áramót.
Næst á dagskrá fundarins var kynning Hróðnýjar Garðarsdóttur á niðurstöðum í sjálfsmati starfsstöðva 2010. SSR hefur nú í annað skipti unnið sjálfsmat á öllum starfstöðvum sínum. Þetta sjálfsmat byggir á gæðamati sem kennt er við EFQM. Matið byggir á því að starfsmenn hverrar starfsstöðvar setjast niður á sameiginlegum fundi þar sem farið er yfir starfið bæði það sem vel gengur og það sem betur má fara og hver og einn gefur hverjum þætti stig em síðan eru reiknuð saman. Helstu flokkar sem eru skoðaðir eru Stjórnun, atrið tengd starfsfólki, þjónusta er skoðuð frá 2 hliðum þ.e. þörf þjónustu og
svo hvernig hún er veitt. Nú þegar hafa verið gerð möt á 41 starfsstöð og niðurstöður teknar saman sýna að þrátt fyrir að niðurstöðutölur sé nokkuð líkar milli flestra staða þá skera sig nokkrir út og það var eins og við mátti búast. Þannig að matið er að skila nokkuð réttri mynd af stöðu mála. Því frávikin tengdust erfiðleikum og breytingum á þeim stöðum. Fullt af fínum verkefnum sem komu fram á þessum fundum og margt gott komið í gang.
Guðný Anna Arnþórsdóttir kynnti útkomu SSR í könnun SFR um "Stofnun ársins" . En þetta er könnun sem SFR hefur látið vinna nú um nokkra ára skeið. Hún byggir á skoðanakönnun sem gerð er meðal starfsfólk um atrið er tengjast starfi þeirra. Almennt má segja um stöðu SSR að í fyrstu skiptin sem SSR tók þátt í þessari könnun þá var SSR í neðri hluta þeirra stofnana sem tóku þátt. En síðustu 2 árin hefur SSR tekið stökk upp á við og er nú um miðjan hóp. Á næsta ári á að vinna að því að auka þátttöku starfsmanna í þessari könnun því aðeins um 35% svöruðu henni.
María Rúnarsdóttir, Verkefnastjóri yfirfærslu málefna fatlaðra, Velferðarsviði Reykjavíkurborgar kom og kynnt fyrir okkur stöðuna hjá þeim í undirbúningi að taka við þjónustu við fatlaða, sem nú njóta þjónustu SSR. En eins og flestir vita er stefnt að því að sveitarfélög taki yfir þjónustu við fatlaða frá og með næstu áramótum. Hún sagði að undirbúningur væri kominn á fullt verið er að stofna hina ýmsu starfshópa og lögð er áhersla á að allir sem koma að þessu málaflokki komi að málinu. Og þá ekki síst hagsmunasamtök og notendur þessarar þjónustu. Hún óskaði eftir góðu samstarfi og miklum samskiptum. Hún kynnti einnig opnun upplýsingagáttar þar sem að fólk getur fylgst með hvernig gengur og gengið upplýsingar. Sjá fyrri frétt
Loks kom á fundinn Guðný Stefánsdóttir til að ræða um framkvæmd SIS matsins sem verið er að leggja fyrir alla þá sem eru í þjónustu hjá Reykjavíkurborg, Ás styrktarfélagi og SSR. Sjá nánar um SIS matið hér


Glærur frá fundinum:
Fyrirlestur Guðnýjar Önnu
Greining Capacent á útkomu SSR
Stofnun ársins kynning Guðnýjar Önnu
Kynning Hróðnýjar
Samantekt niðurstaðna úr sjálfsmati starfsstöðva 2010
Kynning Maríu Rúnarsdóttur
