Fréttir

Unnur Ágústdóttir að kynna umfang SSR
Unnur Ágústdóttir að kynna umfang SSR

Starfsfólki þjónustumiðstöðva kynnt starfsemi SSR

3.6.2010


Í tengslum við undirbúning á yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga hélt Velferðarsvið Reykjavíkurborgar kynningarfund á starfsemi SSR í gær fyrir starfsfólk þjónustumiðstöðva. Á fundinum kynntu stjórnendur SSR umfang og eðli þeirrar starfsemi sem væntanlega mun flytjast til Reykjavíkurborgar um næstu áramót. Í lokin fór framkvæmdastjóri SSR, Jón Heiðar Ríkharðsson, yfir tækifæri og ógnanir sem felast í yfirfærslunni, en ljóst er að ef vel tekst til mun hún leiða til bættrar og skilvirkari þjónustu fyrir fatlað fólk í Reykjavík. Góð mæting var á fundinum þrátt fyrir mikla veðurblíðu í Reykjavík.

Til baka, Senda, Prenta

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn