Fréttir

Skráningu í SIS mat hjá starfsstöðvum SSR lokið

23.6.2010

Um þessar mundir fer fram mat á stuðningsþörf allra einstaklinga á landinu sem eru í búsetuþjónustu fyrir fatlaða. Stuðningsþörfin er metin með bandarísku mati, Supports Intensity Scale (Mat á stuðningsþörf eða SIS mat), sem jafnframt er verið að staðla fyrir íslenskar aðstæður.

Í Reykjavík nær matið til yfir 400 einstaklinga sem njóta búsetuþjónustu hjá þremur rekstraraðilum, SSR, Ás – styrktarfélagi og Reykjavíkurborg.

Fyrirlögn hófst síðari hluta maí mánaðar og er áætlað að verkefninu ljúki í Reykjavík um miðjan september. Allar starfsstöðvar hjá SSR hafa nú lokið skráningu fyrir matið og skráning starfsstöðva hjá Ási – styrktarfélagi og Reykjavíkurborg er langt komin.



Til baka, Senda, Prenta

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn