Fréttir
Forstöðumaður hefur verið ráðinn til starfa frá 1. september næstkomandi
á nýrri skammtímavistun fyrir börn í Árlandi 8, sem tekur til starfa í október 2010. Það er Sigrún Sigurðardóttir þroskaþjálfi sem hefur verið ráðin til starfans, en hún hefur unnið um árabil hjá SSR, m.a. í Mururima, Stigahlíð, Vættaborgum og Móðvaði, en nú síðast sem verkefnastjóri í afleysingu á barnasviði. Sigrún er boðin velkomin til starfa í nýrri skammtímavistun og óskað velfarnaðar.
