Miðgarður
Keila
Keilumeistarar SSR verða krýndir 4. maí næstkomandi í Keiluhöllinni við Öskjuhlíð.
Mæting er klukkan 19:30 en keppnin sjálf byrjar kl. 20:00. Mætið tímanlega því allir þurfa að fá skó við hæfi.
Heyrst hefur að sum liðanna séu búin að velja sér búninga sem vekja munu athygli!
Enn er tími til þess að skrá ný lið til keppni og hvetjum við sem flesta til þess að taka þátt og hafa gaman. Skráning fer fram í gegnum starfsmannafelag@ssr.is og henni lýkur 25.apríl.
Það er til mikils að vinna því
vegleg verðlaun eru í boði.
Kveðja Starfsmannfélagið .
