Fundir og fundagerðir

Aðalfundur 12. des 2005 Fundagerð

Aðalfundur
Starfsmannafélagsins Miðgarðsorms

12. des 2005

Sólveig Steinsson bauð fundargesti velkomna og tilnefndi Steinunni Guðnýju Guðmundsdóttur sem fundarstjóra.  Tók hún við stórn fundarins. Guðlaug Valgeirsdóttir var tilnefnd sem ritari fundarins.

Dagskrá var samkvæmt lögum félagsins

 

1.      Sólveig Steinsson formaður las yfir skýrslu stjórnarinnar

 

2.      Bryndís Theodórsdóttir ritari fór yfir reikninga félagsins. Mesti kostnaðurinn á árinu var í árshátíðinni. Kom fram að endurgreiða þurfti 4 miða samtals að upphæð kr 19.600. Mikilvægt að næstkomandi stjórn skoði hvernig best er að halda utan um það þegar starfsfólk forfallast á árshátíð eða aðrar uppákomur sem starfsmannafélagið bíður upp á.  Við lok uppgjörs skilar félagið af sér kr 79.684. Guðný Steinunn Guðmundsdóttir félagslegur skoðunarmaður reikninga yfirfór reikninga og kvittaði fyrir þá.

 

3.      Lagabreytingar, engar tillögur að breytingum á lögum komu fram.

 

4.      Kosning í stjórn. Búið var að tilnefna nokkra í stjórn og eru þeir eftirfarandi:  Þórdís Viborg frá AMS  formaður, kosin til 1 árs

         Bjargey Una Hinriksdóttir frá skrifstofunni  kosin til 1 árs

         Valdimar Halldórsson frá AMS, kosinn til 2ja ára

         Hildur Þórisdóttir frá sambýlinu Mýrarási, kosin til 1 árs

          Svanhvít frá sambýlinu Stuðlaseli, kosin til 2 ja ára

 

Allir voru samþykktir með lófataki. Stjórnarmeðlimir skipta síðan með sér verkum á fundi, í samræmi við lög Miðgarðsorms.

 

            Skoðunarmenn reikninga eru:

                        Guðný Steinunn Guðmundsdóttir heldur áfram

                        Þórunn Böðvarsdóttir kosin ný

5.      Önnur mál

Umræða kom um það hvort koma ætti á félagsgjöldum, því rekstur starfsmannafélagsins þolir ekki miklar áhættur og getur það takmarkað það framboð á því sem boðið er upp á fyrir starfsfólk SSR. Erfitt að koma því við að taka félagsgjöld af starfsfólki, sumir eru í litlu starfshlutfalli og erfitt að halda utan um það þegar fólk er að hætta. Voru allir fundargestir sammála um það að láta reyna á það að reka starfsmannafélagið næsta ár með óbreyttu sniði.  Það að hafa virkt starfsmannafélag bætir ímynd SSR sem vinnustaðar og er vonandi velheppnuð árshátíð eitt af því. Mikilvægt að nota heimasíðu SSR til að koma á framfæri tilkynningum hvað starfsmannafélagið er að gera.

 

Sólveig þakkaði Steinunni fundarstjóra fyrir góða fundarstjórn og var fundi slitið kl 20:30

 

Ritari Guðlaug Valgeirsdóttir

 



 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn