Starfsmannafélagið

Ný stjórn

Stjórn Miðgarðsorms árið 2007

12.1.2007

Skýrsla stjórnar lögð fram á aðalfundi Miðgarðsorms þann 11. janúar 2007.

 

Starfsmannafélagið Miðgarðsormur hefur nú starfað í tvö ár. Það var stofnað í nóvember 2004.

Þeir sem sátu í stjórn árið 2006 voru Þórdís Viborg formaður, Hildur Jónína Þórisdóttir gjaldkeri, Svanhvít Jóhannsdóttir ritari, Bjargey Una Hinriksdóttir og Valdimar Halldórsson.

 

Svanhvít Jóhannsdóttir og Valdimar Halldórsson voru kosin til tveggja ára setu í starfsmannafélaginu. Valdimar sagði af sér og Svanhvít hætti störfum hjá SSR og þurfti þar af leiðandi að segja af sér. Þórdís Viborg og Hildur Jónína Þórisdóttir taka þeirra sæti.í næstu stjórn.

 

Ákveðið var að fundað yrði einu sinni í mánuði og festur niður fyrsti þriðjudagur hvers mánaðar í þeim tilgangi.

 

Skipulagðir voru eftirfarandi atburðir:

  • Keilumót SSR.
  • Námskeið í þæfingu.
  • Golfnámskeið.
  • Námskeið í brjótsykursgerð.
  • Árshátíð

 

 

Tillögur að fleiri viðburðum komu upp og getur næsta stjórn notast við þær hugmyndir.

 

 

Fráfarandi stjórn Miðgarðsorms óskar þeim sem nú taka við stjórninni velfarnaðar í starfi.

 

F.h. stjórnar Miðgarðsorms

 

________________________

Þórdís Viborg formaður

 

 

                           

 



 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn