Þjónusta SSR

Upplýsingar um þjónustu SSR

  • Hlutverk SSR er að veita þeim þjónustu og aðstoð sem eru andlega eða líkamlega fatlaðir og þarfnast sérstaks stuðnings af þeim sökum

  • Með fötlun er einkum átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun og sjón- og heyrnarskerðingu. Fötlun getur einnig verið afleiðing af langvarandi veikindum, svo og slysum

  • Fjölskyldur fatlaðs fólks og þeir sem veita þeim þjónustu geta leitað til SSR sem hefur yfirsýn með þjónustu fyrir fatlað fólk í Reykjavík

  • SSR veitir upplýsingar um möguleika fatlaðs fólks til þjónustu, náms, starfs og tómstundaiðju. Enn fremur aðstoðar hún fólk við að sækja um aðstoð og þjónustu, m.a. hjá Tryggingastofnun ríkisins, sveitarfélögum og öðrum aðilum

  • SSR rekur umfangsmikla þjónustu í Reykjavík fyrir fatlað fólk. Þjónusta SSR nær til ráðgjafaþjónustu, búsetuþjónustu, skammtímavistunar, dagþjónustu og atvinnuleitar. Aðrir rekstraraðilar að þjónustu í Reykjavík skv. lögum um málefni fatlaðra eru Styrktarfélag vangefinna, Félagsþjónustan, Blindrafélagið og Múlalundur

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn