Um SSR

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík (SSR)

  • SSR er ríkisstofnun sem starfar á vegum félagsmálaráðuneytisins

  • SSR veitir fötluðu fólki í Reykjavík þjónustu, bæði börnum og fullorðnum

  • SSR veitir fjölskyldum og aðstandendum fatlaðs fólks ráðgjöf og þjónustu

  • SSR vinnur að framgangi laga um málefni fatlaðra (sjá lög nr. 59/1992)

Grundvöllur að starfi SSR var lagður árið 1979 með lögum um málefni þroskaheftra. Árið 1982 tóku við lög um málefni fatlaðra sem náðu til allra sem voru andlega eða líkamlega fatlaðir. Þau voru endurskoðuð 1992

SSR er nú starfandi á yfir 50 stöðum í Reykjavík. Þessir staðir skiptast í sambýli og áfangastaði, heimili fyrir börn, íbúðakjarna með frekari liðveislu, dagþjónustur og  skammtímavistanir auk aðalskrifstofunnar að Síðumúla 39

Fjöldi einstaklinga sem daglega nýtir sér þjónustu SSR er um 750

Starfsmenn SSR eru yfir 600

Umfangið má sjá eftirfarandi mynd sem sýnir dreifingu starfsstöðva SSR (ekki nákvæmar staðsetingar). Smelltu á myndina til að fá stærri og skýrari mynd.

 Starfsstöðvar SSR

Sjá umfang starfssemi SSR í mars 2006

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn