Gylfaflöt dagþjónusta
Gylfaflöt er dagþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16-25 ára. Boðið er upp á heils dags – og hálfs dags pláss. Geta allt að 30 ungmenni notið þjónustunnar samtímis.
Iðjuberg dagþjónusta og vinnustofa
Iðjuberg er dagþjónusta og verndaður vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp fatlaðra á aldrinum 25 ára –og uppúr.
Boðið er upp á heils dags-og hálfs dags pláss. Iðjuberg er opið alla virka daga frá kl. 8:00 – 16:00 Allt starf í Iðjubergi er einstaklingsmiðað og er starfseminni skipt upp í fimm þætti.
1. Hæfing. 2. Vinnustofa. 3. Listiðja. 4. Dagþjónusta/félags og tómstundarstarf. 5. AMS - hópur.
