AMS

Atvinna með stuðningi

Atvinna með stuðningi (AMS)

(Supported employment)
Síðumúla 39 108 Reykjavík

Atvinna með stuðningi hóf starfsemi sína í mars 1999

Forstöðumaður AMS er Bryndís Theodórsdóttir
Sími 533 1388 eða GSM 8601319,
Bréfsími 533 1399 Netfang :
bryndis@ssr.is

Atvinna með stuðningi er árangursrík leið í atvinnumálum fyrir þá er þurfa aðstoð við að komast út á almennan vinnumarkað. Vinnubrögðin fela í sér víðtækan stuðning við þá sem hafa skerta vinnugetu vegna andlegrar og/eða líkamlegrar fötlunar, hjálp við að finna rétta starfið og veita stuðning á nýjum vinnustað.

ATVINNA MEÐ STUÐNINGI FELUR Í SÉR :

  • Þátttaka og þjálfun á almennum vinnumarkaði.
  • Aðstoð við öflun starfa með sömu réttindum og skyldum og almennt gerist.
  • Hæfileiki einstaklingsins og starfsgeta er höfð að leiðarljósi, en ekki fötlunin.
  • Einstaklingsbundin úrræði þar sem þess er gætt að velja saman starfsmann og starf.
  • Aðstoð við að mynda tengsl á vinnustað.
  • Stuðningur svo lengi sem þörf er á.
  • Eftirfylgd er eitt af því sem skilur atvinnu með stuðningi frá "hefðbundnum" leiðum. Með eftirfylgd er átt við langvarandi stuðning sem auðveldar einstaklingnum að aðlagast starfinu og vinnustaðinn að starfsmanninum. Eftirfylgd nýtist báðum aðilum, vinnuveitandanum jafnt sem starfsmanni. Vinnubrögð ams stuðla að því að enginn sé skilinn eftir í óvissu eða óöryggi á vinnustaðnum. Áhrif á vinnumarkað. Rannsóknir hafa sýnt, að með stuðningi við hæfi hafa möguleikar fatlaðs fólks til að stunda vinnu aukist til mikilla muna. Ýmsar jákvæðar breytingar hefur einnig mátt merkja á vinnustöðum með tilkomu fatlaðra starfsmanna.
  • Starfsmenn AMS
 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn