Jafnréttisáætlun SSR

Reykjavík

Inngangur

Lengi hefur staðið til að semja jafnréttisáætlun fyrir SSR og lítur hún nú dagsins ljós. Við samningu hennar eru höfð að leiðarljósi lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna nr. 96/2000, og framkvæmaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum sem samþykkt var á Alþíngi 29.maí 1998. Þá er jafnræðisregla stjórnarskárinnar, 65.grein, um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda, lögð til grundvallar.

Orðin jafnrétti og jafnræði hafa ekki alveg sömu merkingu í almennri málnotkun. Jafnrétti táknar gjarnan jafnan rétt kynjanna, en jafnræði, sem er almennara hugtak, táknar jafnan rétt manna óháð kyni, þjóðerni eða trúarbrögðum.

Við samningu áætlunarinnar er horft til sambærilegra áætlana Stjórnarráðs Íslands, Landspítala – Háskólasjúkrahúss, Orkustofnunar, Háskóla Íslands og fleiri.

Jafnréttisáætlun verður í sífelldri mótun og þróun, samanber IV kafla.

Framkvæmd jafnréttisáætlunar er fyrst og fremst í höndum sviðsstjóra, forstöðumanna og forstöðuþroskaþjálfa SSR.

 

 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, sviðsstjóri starfsmannasviðs / starfsmannastjóri

 

I. Markmið

Allir starfsmenn SSR skulu njóta sömu tækifæra og sambærilegra réttinda, burtséð frá kynferði, þjóðerni, stöðu eða högum í samræmi við lög nr.96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og stjórnsýslulög nr.11/1993. Þar segir m.a.:

”Óheimilt er að mismuna aðilum við úrlausn mála á grundvelli sjónarmiða, byggðum á kynferði þeirra, kynþætti, litarhætti, þjóðerni, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum, þjóðfélagsstöðu, ætterni eða öðrum sambærilegum ástæðum.”  

Áhersla mun lögð á að nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum kvenna og karla.

 

SSR mun leitast við að ná þessu markmiði m.a. með því að

  • gæta jafnræðis við ákvarðanatöku varðandi ráðningar, kjaramál, starfsþjálfun  og endurmenntun;
  • gera starfsmönnum kleift að samræma atvinnu og fjölskyldulíf;
  • líða hvorki einelti, kynferðislega áreitni né annað ofbeldi á vinnustað.

 

Aðgerð:  Árleg greining á launa- og kjarajafnrétti ásamt tölfræðilegri samantekt.

Ábyrgð:  Starfsmannasvið.      

 

efst á síðu

II. Stefna

Ráðningar

Að öðru jöfnu mun sá af því kyni sem er í minnihluta í auglýstum störfum ganga fyrir um ráðningu.   Samkvæmt 22.grein laga nr.96/2000,

“teljast aðgerðir til að auka möguleika kvenna eða karla sérstaklega til að koma á jafnrétti og jafnri stöðu kynjanna ekki ganga gegn lögum þessum.  Sama á við ef nauðsynlegt telst að ráða annað kynið vegna hlutlægra þátta er tengjast starfinu.”

 

Laun

Laun munu ákveðin á sama hátt fyrir konur og karla.og munu þau njóta sömu starfskjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.   Einnig munu kynin njóta sömu kjara varðandi lífeyris-, orlofs- og veikindarétt.  SSR mun gæta þess að ákvarðanir í launamálum séu teknar með málefnalegum hætti í samræmi við ríkjandi kjarasamninga hverju sinni.

 

Aðgerð:  Árleg úttekt á umsóknum og ráðningum tvisvar á ári.

Ábyrgð:  Starfsmannasvið.

 

Starfsþjálfun og endurmenntun

Markmið SSR er að hafa ávallt á að skipa hæfasta starfsfólki á hverju sviði.   Í því skyni hvetur stofnunin til starfsþjálfunar og endurmenntunar. Lögð mun áhersla á að bæði kynin eigi jafna möguleika, hvort sem um er að ræða starfsþjálfun eða endurmenntun, í samræmi við stefnu SSR í endurmenntunarmálum.

 

Aðgerð:  Árleg greining á umsóknum kvenna og karla í sambærilegum störfum um

endurmenntun og starfsþjálfun.

Ábyrgð:  Starfsmannasvið.

 

Þátttaka í nefndum og vinnuhópum

Gætt mun jafnræðis við skipan í nefndir og vinnuhópa innan SSR í samræmi við 22.grein laga nr.96/2000, en þar segir, að þar sem því verði við komið sitji sem næst jafnmargir konur og karlar í nefndum, ráðum og stjórnum. Verður það gert í rökréttu samræmi við fjölda kvenna og karla í störfum innan SSR, en konur eru þar í miklum meiri hluta. 

 

Starfsaðstæður

Starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og kynferðisleg áreitni, einelti  eða annað ofbeldi er ekki liðið.  Kynferðisleg áreitni er samkvæmt 17.grein laga nr.96/2000,

“..hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi  og í óþökk þess sem fyrir henni verður, hefur áhrif á sjálfsvirðinu þess eða þeirra sem fyrir henni verða og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé í skyn að hegðunin sé óvelkomin.  Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.  Eitt tilvik getur talist kynferðisleg áreitni ef það er alvarlegt.” 

Einelti er endurtekið andlegt og/eða líkamlegt ofbeldi þar sem einn eða fleiri veitast að einhverjum einstaklingi.  Einelti gerir lífið á vinnustaðnum illþolanlegt eða óbærilegt fyrir starfsmanninn og hefur slæm áhrif á starfsandann.  Starfsmaður sem telur sig verða fyrir einhvers konar misrétti getur leitað til yfirmanns síns  eða trúnaðarmanns sem munu leiðbeina honum í slíkum málum og veita nauðsynlega aðsoð.

 

Aðgerð:  Fræðsla varðandi kynferðislega áreitni veitt.  Útbúnar verklagsreglur um hvaða aðgerða skuli grípa til, komi upp kynferðisleg áreitni eða einelti á vinnustöð.

Ábyrgð:  Starfsmannasvið.

 

Fjölskyldustefna

Markmið SSR er að gera starfsmönnum kleift að samræma starfskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið.  Konum jafnt sem körlum skal gert kleift að minnka við sig vinnu tímabundið til að sinna fjölskylduábyrgð svo sem umönnun barna eða annarra fjölskyldumeðlima.  Gengið er út frá að foreldrar ungra barna taki það fæðingarorlof sem sem þeir eiga rétt á og eru feður sérstaklega hvattir til að nýta sér rétt til fæðingarorlofs. 

 

efst á síðu

III Þjónustuhlutverk SSR

Viðskiptavinir SSR munu eftirleiðis sem áður eiga aðgang að þjónustu stofnunarinnar óháð aðstæðum sínum og kyni.  Allar ákvarðanir um þjónustu munu taka mið af þessu.  Í ljósi þessa munu jákvæð samskipti styrkt og lögð áhersla á gagnkvæma virðingu starfsfólks og viðskiptavina/þjónustuþega.

 

Aðgerð:  Þjónustukannanir gerðar meðal viðskiptavina SSR annað hvort ár.

Ábyrgð:  Framkvæmdastjóri.

 

IV Kynning og endurskoðun

Jafnréttisáætlun SSR mun kynnt fyrir öllum starfsmönnum stofnunarinnar og nýjum starfsmönnum gerð grein fyrir efni hennar.  Jafnréttisáætlun mun eftir kynningu verða aðgengileg starfsmönnum á innra neti (Miðgarði) SSR. 

Jafnréttisáætlun SSR mun endurskoðuð árlega samhliða gerð annarra áætlana.

 

V. Ábyrgð

Ábyrgð á jafnréttismálum SSR, framgangi þeirra og framkvæmd er í höndum framkvæmdastjóra SSR í samráði við starfsmannastjóra.

 

 

 

 

Reykjavík september, 2004

efst á síðu



 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn