Siðareglur Svæðisskrifstofa

Starfsmaður leitast við í starfi sínu:

  1. Að sýna fötluðu fólki virðingu og virkja það til að móta líf sitt.

  2. Að veita þjónustu og stuðning af ábyrgð og nærgætni með velferð fatlaðs fólks að leiðarljósi.

  3. Að virða einkalíf fatlaðs fólks og halda þagnarskyldu.

  4. Að sýna fötluðu fólki kurteisi, virðingu og heiðarleika í viðmóti og umræðu.

  5. Að stuðla að lífsskilyrðum og umhverfi sem tekur mið af lífaldri fatlaðs fólks og hvetur til sjálfstæðis.

  6. Að mismuna ekki fötluðu fólki t.d. vegna aldurs, fötlunar, kyns, kynþáttar, kynhneigðar, þjóðernis, trúarbragða eða skoðana.

  7. Að vera fötluðu fólki  jákvæð og góð fyrirmynd.

  8. Að sýna aðstandendum kurteisi, virðingu og heiðarleika í viðmóti og umræðu. 

  9. Að stuðla að því með starfi sínu að efla virðingu fyrir fötluðu fólki í samfélaginu. 

  10. Að veita fötluðu fólki stuðning til að fá vel metin og eftirsóknarverð hlutverk í samfélaginu. 

  11. Að tileinka sér vönduð vinnubrögð og stundvísi.

  12. Að þekkja réttindi fatlaðs fólks og vinna samkvæmt gildandi lögum þar um. 

  13. Að sýna samstarfsfólki kurteisi, virðingu, trúnað og heiðarleika í viðmóti og umræðu og styðja og styrkja hvert annað í starfi. 

  14. Að mismuna ekki samstarfsfólki t.d. vegna kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða eða skoðana og að leggja ekki hvert annað í einelti. 

  15. Að leita sér upplýsinga, menntunar/endurmenntunar og fræðslu til að ná árangri í starfi og vera tilbúinn að miðla þekkingu. 

  16. Að virða þagnarskyldu og sýna vinnuveitanda trúnað.  Þagnarskylda helst eftir að störfum er lokið.

 


Ítarefni Siðareglna

 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn