Þjónustustefna SSR

SSR stefnir að því að veita þjónustu:

sem kemur til móts við óskir og þarfir fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra

  • með óskum er átt við að veita þá þjónustu sem leitað er eftir
  • með þörfum er átt við að þörf fyrir þjónustu sé metin

 

sem felur í sér gæði, fagmennsku og hagkvæmni

  • með gæðum er átt við að þjónustan komi til móts við óskir og þarfir
  • með fagmennsku er átt við að þjónusta sé veitt af þekkingu, færni og ábyrgð
  • með hagkvæmni er átt við að fjárveiting nýtist sem best

 

með virðingu og reisn

  • með virðingu er átt við kurteisi, ábyrgð og umhyggju í daglegum samskiptum
  • með reisn er átt við virðingu fyrir almennum mannlegum gildum í lífi og starfi


 

 

Aðgangur fyrir starfsmenn