Nánar um umhverfisstefnu SSR
Umhverfisstefna SSR var undirbúin af verkefnahópi sem í voru eftirtaldir forstöðumenn: Guðrún Dagný Pétursdóttir, Guðmundur Már Björgvinsson, Friðrik Atlason, Harpa María Petersen og Þóroddur Þórarinsson. Á haustfundi SSR sem haldinn var 11. nóvember 2009 á Hótel Örk í Hveragerði var tillaga að umhverfisstefnunni kynnt og áhersluatriði unnin frekar í hópavinnu.
Umhverfisstefna SSR
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík (SSR) er ríkisstofnun sem gegnir margþættu hlutverki í þjónustu við fötluð börn og fullorðna (sbr. lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992). Meðal verkefna SSR er rekstur búsetuþjónustu, dagþjónustu og skammtímavistunar fyrir fatlaða. Markmið umhverfisstefnu SSR eru:
- Að standa vörð um náttúru landsins
- Að starfsemi SSR hafi sem minnst skaðleg áhrif á umhverfi sitt
- Að SSR sé til fyrirmyndar í umhverfismálum
- Að SSR leggi sitt að mörkum í sjálfbærri þróun með framtíðina í huga
Megináherslur í umhverfisstefnu SSR eru:
- Að halda orkunotkun í lágmarki
- Að ástunda umhverfisvæn innkaup
- Að halda úrgangi í lágmarki – auka endurvinnslu
- Að ástunda umhverfisvænar samgöngur og fundi
- Að efla umhverfisvitund með fræðslu
SSR leggur áherslu á eftirfarandi leiðir til að ná markmiðum umhverfisstefnunnar:
Halda orkunotkun í lágmarki
SSR kappkostar að nota ekki meiri orku en nauðsynlegt er í starfsemi sinni. Meðal áhersluatriða hjá SSR er:
- Að gengið sé úr skugga um í lok hvers starfsdags að slökkt hafi verið á öllum ljósritunarvélum, prenturum og öðrum tækjum
- Nota sparperur í stað glópera
- Að ástunda fyrirbyggjandi viðhald
- Að fullnýta þvottavélar/þurrkara
- Að kaupa orkuvæn tæki
Mælikvarðar – Umhverfisvísar
- Minni orkunotkun – lækkun orkureikninga
Ástunda umhverfisvæn innkaup.
SSR stundar umhverfisvæn innkaup að því marki sem slíkt er gerlegt með hliðsjón af gæðum og kostnaði. Með það að viðmiði leitast SSR við:
- Að keyptar verði umhverfismerktar vörur; pappír, prenthylki, hreingerningarvörur ofl.
- Að forðast sé að keyptar verði vörur sem unnar eru úr efniviði sjaldgæfra tegunda
- Að forðast sé að nota vörur sem innihalda lífræn leysiefni, þar sem þau eru skaðleg umhverfi og heilsu manna
- Að keypt verði orkusparandi tæki
Mælikvarðar – Umhverfisvísar:
- Minni úrgangur
- Lækkun rafmagnsnotkunar
Halda úrgangi í lágmarki – auka endurvinnslu
SSR leitast við að sem minnstur úrgangur leggist til af starfseminni. Meðal áhersluatriða er:
- Að ljósrita báðum megin á pappír eins og hægt er, og að endurnota pappír sem eingöngu er búið að prenta á öðrum megin
- Að safna öllum endurvinnanlegum pappír saman og skila í endurvinnslu
- Að nota upplýsingar á rafrænu formi og draga úr útprentun
- Að draga úr notkun hreingerningaefna og nýta örtrefjatækni við þrif
- Að safna dósum og endurvinnanlegum drykkjarumbúðum og skila til endurvinnslu
- Að nota blaðakassa til að safna blöðum sem fara eiga í endurvinnslu
- Að skipuleggja innkaup með lágmörkun úrgangs í huga
Mælikvarðar - Umhverfisvísar
- Minna sorp – færri ruslatunnur
- Telja fjölda kassa sem fer í endurvinnslu
- Halda til haga fjölda dósa og flaskna sem fer í endurvinnslu
Ástunda umhverfisvænar samgöngur og fundi
SSR leitast við að flutningur á fólki og vörum sé ekki meiri en nauðsyn krefur. Áhersluatriði eru:
- Að hvetja starfsfólk til að samnýta bíla
- Að taka þátt í átökum um umhverfisvænar samgöngur
- Að staðsetja fundi með tilliti til ferða fundarmanna
- Að halda netfundi þar sem það er hægt
- Að leita leiða til að kolefnisjafna akstur tengdan starfsemi SSR
Mælikvarðar – Umhverfisvísar
- Fjöldi ekinna kílómetra
- Fjöldi þátttakenda í samgönguátökum
- Fjöldi netfunda
Efla umhverfisvitund með fræðslu
Þekking og skilningur á umhverfismálum er forsenda ábyrgðar í umgengni við umhverfið. SSR vill stuðla að umhverfisvitund með því:
- Að kynna umhverfisstefnu sína og gera hana öllum aðgengilega
- Að stofna umhverfisnefnd og efna til Umhverfisverðlauna SSR
- Að hafa umhverfismál meðal fastra fræðslutilboða starfsfólks
- Að setja viðmið tengd umhverfisvernd í almennt verklag t.d. með gátlistum
Mælikvarðar – Umhverfisvísar:
- Fjöldi umhverfistengdra atriða í starfsáætlunum
- Fjöldi þátttakenda á umhverfistengdum námskeiðum
- Fjöldi umhverfistengdra atriða í sjálfsmati
